---LAUS STRAX---HLUTDEILDARLÁN - Ný íbúð til sölu í Neskaupstað Fjarðarbyggð. Stúdíó íbúð á annarri hæð.. Íbúðin er eitt rými, eldhús stofa og svefnrými.
Íbúðin er í átta íbúða í fjölbýlishúsi á tveim hæðum a við Hafnarbraut nr 38. Sameiginlegur inngangur. Íbúðin fellur undir skilmála HMS um stærðir og verð fyrir Hlutdeildarlán.
Til afhendingar við kaupsamning.
Við kaup með Hlutdeildarláni þarf kaupandi einungis að greiða 5% kaupverðs, eða 1,675.000 kr. við kaup á þessari íbúð. Einnig þarf að standast greiðslumat fyrir 75% húsnæðislán hjá fjármálastofnun eða banka. Hlutdeildarlán er 20% af kaupverðinu.
Íbúðin er afhent fullfrágengin að innan sem utan. Myndir eru úr tilbúnum, sambærilegum íbúðum í húsinu.
Eldhús: Arens eldhúsinnrétting með innbyggðum Electrolux heimilistækjum; innbyggðum ísskáp/frysti, innbyggðri uppþvottavél, helluborði og ofni og loftunarháf. Ljúflokur á skáphurðum. Plastlagðar borðplötur.
Baðherbergi: Veggir og gólf eru með FIBO TRESPO. Vegghengt WC og sturtuhorn (niðurföll í gólfi). Innrétting og vaskur/blöndunartæki. Tengi fyrir þvottavél á baði. Vifta á baði / ekki gluggi.
Gólfefni: Eikar-harðparket er á gangi og herbergjum, stofu og eldhúsi. Hiti er í gólfum. Sér geymsla íbúðarinnar er í sér húsi á lóð.
Ævar Dungal Löggiltur fasteignasali sími 897-6060 /
[email protected]-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af veðskuldabréfi - 0% af höfuðstól skuldabréfs.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0,5 - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu 58.475,-